Kemur frá Norður Afríku en er ræktaður víða í dag. Rómverjar töldu hann mikið sælgæti og hann var einnig í tísku á 16. öld meðal tignarmanna. Ætiþistlar eru ýmist grænir og grænleitir en minni eru þeir aðeins meira útí vínrauðan. Bragðið er nokkurn vegin það sama. Mikið notaðir í salöt. Það er ekki fyrir alla að verka þá vegna þess að það er mikil vinna. Í dag eru þeir seldir tilbúnir og eru mjög góðir í olíu.