Olían er unnin úr svörtum, fullþroskuðum ólífum. Ólífuolía er mjög misjöfn að gæðum og fer eftir hreinsun og hitastigi. Ítalir framleiða 2/3 hluta af þeirri ólífuolíu sem er á markaðinum í heiminum. Jómfrúarolía (extra-vergine) er best, hún er kaldpressuð og sýrustig hennar er um 1% í hæsta lagi. Olían hentar vel með flestum mat en hún er ekki síður góð beint á húðina. Hún er talin mjög holl og inniheldur fitusýrur sem líkaminn þarfnast.. Eyjan Krít var stærsta verslunarmiðstöð fyrir ólífuolíumarkaðinn fyrir c.a 3800 árum..