CHARTREUSE

Franskur brandílíkjör, bragðbættur með kryddjurtum samkvæmt leynilegri uppskrift. Sagt er að karþúsamunkar í Vauvert hafi bruggað hann á 17. öld og frá þeim barst uppskriftin til karþúsamunka árið 1735 í Grande-Chartrause við Grenoble. Styrkleiki er yfirleitt 55%, en er til allt upp í 71%.