Engiferjurtin vex villt í suðaustanverðri Asíu og er ræktuð á öðrum hitabeltissvæðum. Jarðstöngullinn er sætur og bragðmikill og því góður bæði sem krydd í matreiðslu og til lækninga. Í dag er engifer áberandi með sushi og sashimi, þá picklaður í sykur-ediklegi. Er af mörgum notaður við við kvefi, flensu og öðrum heilsukvillum enda hefur engifer lengi verið einn af hornsteinum austurlenskra náttúrulækninga.