ESTRAGONE

Kryddtegund sem hefur verið notuð í Evrópu frá 15.öld en er talin fyrst koma frá Síberíu. Hún var notuð til lækninga við eitri í líkamanum og latneska nafnið þýðir lítill dreki. Maður kannast alltaf við estragone vegna þess að hún er í hinni klassísku eggjasósu béarnaise. Hún er líka góð í desserta, búðinga og sósur.