GÚRKA

Agúrka eða gúrka er ættuð frá Indlandi og hefur verið ræktuð í þúsundir ára. Gúrkur voru fyrst ræktaðar á Íslandi árið 1913 á Reykjum í Mosfellsbæ. Gúrkur eru oftast borðaðar ferskar og gjarnan settar á brauð eða í salöt. Gúrka er 96% vatn og inniheldur mikið af C-vítamíni.