GORGONZOLA

Ítalskur blá- eða grænmygluostur gerður úr kúamjólk. Finna má heimildir um gerð hans margar aldir aftur í tímann eða allt til ársins 879. Nafnið er tekið frá þorpinu Gorgonzola skammt frá Mílanó. Þegar osturinn kemur úr framleiðslu er hann settur inn í kjallara eða helli og geymdur þar í um það bil þrjá mánuði.