HUMARHALAR

Leturhumar er veiddur hér við Norður-Atlandshaf og er smávaxinn humartegund en talin einn af þeim bestu og algjört lostæti þegar hann er rétt eldaður. Inní miðjum humrinum er svört rönd sem þörf er á að fjarlæga fyrir eldun. Humar er hægt að sjóða, steikja eða grilla. Yfirleitt er hann kryddaður með hvítlauk og salti og pipar. Einnig er hægt að fá aðra tegund af humri sem er stærri en sá sem hvað mest er notaður hér á landi, en sá er mikið í Frakklandi og Bandaríkjunum. Í gamla daga var humar yfirleitt hent og var talinn matur fátækamannsins.