KAKÓ

Nafnið kakó kemur úr máli Asteka. Kakótréð er upprunnið frá Suður-Ameríku og getur náð 10-12 metrum á hæð. Baunum er safnað í hauga og látnar gerjast. Síðan eru þær þvegnar, þurrkaðar og ristaðar og því næst afhýddar og malaðar. Það eru til margar tegundir af kakó en sú besta er talin koma frá Suður-Ameríku, Venesúela.