LÁRVIÐARLAUF

Lárviðartréð (laurus nobilis) getur orðið 20 metra langt. Talið upprunnalega frá Litlu-Asíu. Forn-Grikkir helguðu því guðinum Appolló og notuðu laufin til að krýna sigurvegarana í íþróttakeppnum og til að heiðra skáld. Rómverjar töldu að sá sem bæri lárviðarsveig á höfði sínu yrði ekki fyrir eldingu þótt þrumuveður geisaði yfir. Bragðmikil og ögrandi kryddjurt.