OSTRA

Hafa verið ræktaðar og týndar síðan í fornöld. Þær þrífast best í samblandi af söltuðu og fersku vatni. Þær eru víða í Evrópu, Ástralíu og Norður Ameríku en allar hafa þær sinn karakter og eru misjafnlega saltar. Þetta er munaðarvara og erfitt að nálgast hana. Sælkerar vilja þær gjarnan hráar með slettu af sítrónusafa. Þær eru líka taldar góðar fyrir kyngetuna og innihalda mikið af járni og joði, og einstaklega ríkar af sinki. En ekki er gott að borða þær á hverjum degi vegna uppsöfnunar í líkamanum á þessum efnum.