REYNIBER

Alltaf þegar ég var barn hélt ég að þessi ber væru eitruð en þau eru það ekki. Ber reynitrésins, eru mjög römm á bragðið og því sjaldan borðuð fersk, en mikið notuð í sultur. Gott er að skola þau í 3-4 daga áður en þú notar þau og skipta oft um vatn á þeim til að losan við remmuna.