SÚKKULAÐI

Nafnið súkkulaði kemur úr máli Asteka og var notað yfir mauk sem gert var úr baunum kakótrésins. Kakóbaunir komu fyrst til Spánar eða Evrópu um 1524. Til eru margar tegundir af súkkulaði og hefur hver og ein blanda sinn karakter. Hvítt súkkulaði er eiginlega ekki súkkulaði heldur blanda af kókósmjöri, mjólkurdufti og sykri. Súkkulaði er yfirleitt notað sem sætindi eða í eftirrétti, en einnig oft í matreiðlsu og er einkar gott með kjöti og fiski.