Fræflar úr krókus, handtínt og eitt dýrasta krydd í heimi, enda eru bara þrír fræflar á hverju blómi. Á bilinu 70.000-200.000 blóm þarf í eitt kíló af saffron. Talið er að besta saffranið komi frá Valencia á Spáni. Saffran hefur lengi verið notað í matargerð og Salómon Ísrealskonungur hélt mikið upp á það. Það er rauðgult á lit og bragðmikið svo varast skal að nota mikið af því hverju sinni.