VAFFLA

Vöfflur eru taldar hollenskar að uppruna en eru í dag þekktar víðast hvar á Vesturlöndum. Vöfflur eru langbestar heitar og eiga upprunalegar að vera stökkar. Hér á landi eru þær gjarnan bornar fram með þeyttum rjóma og sultu. Ég mæli með ís og súkkulaðisósu, eða jafnvel bragðbæta þær með góðu kryddi.